Nýtt kjördeildarkerfi var tekið í notkun vorið 2024 og er eldra kerfið ekki lengur aðgengilegt. Í nýja kerfinu eru sömu aðgerðir og í því eldra og er því aðallega um breytt viðmót að ræða að viðbættum tölfræði upplýsingum sem nú eru aðgengilegar í kerfinu.
Það er mikilvægt að sveitarfélög sæki um aðgang að kerfinu til að fara yfir röðun á kjörstaði og kjördeildir en einnig vegna þess að kjörskrár eru afhentar í kerfinu. Þannig er mikilvægt fyrir öll sveitarfélög að gæta þess að minnsta kosti einn aðili hafi aðgang að kerfinu þó það sé ekki nema til að nálgast kjörskrá.
Nauðsynlegt er að sækja um aðgang að kerfinu á ný einnig fyrir þá sem höfðu aðgang áður.
Kjósendaspá
Notendur geta nú kannað hversu margir kjósendur eru í þeirra sveitarfélagi miðað við tegund kosninga án þess að það sé virk kosning í kerfinu
Leiðréttingar á kjörskrá – gerðar eftir viðmiðunardag
Sveitarfélög fá framvegis upplýsingar hér (ksk.skra.is) um leiðréttingar sem Þjóðskrá hefur tekið til meðferðar eftir gerð kjörskrár